Forsíða
Velkomin á vef Lækjarbotna
Þriðjudagur, 15. maí 2012 17:48

Fyrsta folaldið fæddist í morgun, kom fallegur jarpur hestur undan Hraundísi frá Lækjarbotnum og Þyt frá Neðri-Seli. Hann hefur fengið nafnið Garri og er hann albróðir Asks frá Lækjarbotnum sem lenti í verðlaunasæti á ungfolasýningu um daginn. Hér á myndunum má sjá Ask annars vegar á ungfolasýningunni og svo Garra nokkurra klukkustunda gamlan.

garri1  askuritridjasaeti1

 
Föstudagur, 11. maí 2012 17:16

Púki frá Lækjarbotnum fór í dóm í gær og yfirlitsdóm í dag og fékk flottar tölur, hann fékk 8,5 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, vilja og geðslag, fet og hægt tölt. Fyrir sköpulag fékk hann 7,91, hæfileika 8,30 og endaði með aðaleinkunn 8,14. Jóhann Ragnarsson tamdi og sýndi Púka, glæsilegur árangur hjá ekki eldri fola og hann því kominn með miða inn á landsmót. Púki verður til afnota hér heima á Lækjarbotnum í sumar. Elín Hrönn Sigurðardóttir tók myndirnar af Púka. Tvær hryssur frá Þórunni og Sigga fóru í byggingardóm, Frostrós frá Lækjarbotnum fékk 7,74 og Mósa frá Bjóluhjáleigu  7,69, stefnt er á að fara með þær báðar í fullnaðardóm næsta vor.

pukiidomi3  pukiidomi1

 
Sunnudagur, 06. maí 2012 09:20

Sauðburður er nú hafinn fyrir alvöru, nú þegar eru komnar tvær þrílembur, önnur var sædd með Forða frá Heydalsá og hin með Hriflon frá Hriflu.  Enginn hrútur skar sig sérstaklega úr fyrir frjósemi og hélt nokkuð vel úr sæðingunni í ár. Annars fannst okkur fullmörg hrútlömb koma frá þeim ám sem voru sæddar. Svo má ekki gleyma flotta heimahrútnum honum Jaka frá Lækjarbotnum en hann stendur alltaf fyrir sínu og hefur borið skart undan honum, einn flottasti kollótti hrútur sem við höfum haft og er hann einnig kurteis við ærnar á fengitíma. Hérna eru tekin vaktaskipti yfir sólarhringinn svo allir fái einhvern svefn en maí mánuður vill oft verða annsi strembinn og ekki hjálpar til þegar fiskpantanir hlaðast inn en núna er orðið mikið að gera í slátrun og verkun hjá Nínu og Gulla. Á fyrstu myndinni má sjá Sigga með hrútlamb undan Skrauta frá Hjarðarfelli.

Það er þó ekki bara ungviði hjá rollunum en kanínubúskapurinn dafnar vel hér á bæ, fullt af litlum krílum að fæðast á þessum dögum. Nína fékk loksins unga undan angórukanínunum,  hérna eru tvær myndir  annars vegar af  þriggja vikna angóru/rex blendingi og hin af fullorðinni angórukanínu.

siggimedskrautason1  angoruogrexblendingur1  angorukelling1

 
Laugardagur, 05. maí 2012 15:48

Jódís frá Lækjarbotnum sem við seldum á síðasta ári var að fara í dóm og fékk líka þessar flottu tölur. Hún fékk 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og háls. Sköpulagseinkunnin var 8,33, hæfileikaeinkunn 8,11 en hún er skeiðlaus og fékk 8,20 í aðaleinkunn. Gaman þegar vel gengur með hrossin hjá nýjum eigendum en Jódís er komin út til Þýskalands. Jódís er undan Töru frá Lækjarbotnum og Hágangi frá Narfastöðum. Á myndunum sést Jódís sem folald og svo þegar hún var í byrjun tamningar hjá hjónunum í Neðra-Seli.

Um helgina var farinn hinn árlegi reiðtúr með hjónunum frá Fellsmúla, í þetta skiptið komu þau til okkar í kaffi. Áður fyrr var farið mun fyrr í reiðtúrin þá kringum páskana en ákveðið var að seinka honum aðeins svona til að ná frekar góðu veðri. Þórunn og Siggi riðu upp að Brúarlundi þar sem þau hittu Sigurjón með fjóra hesta og Hollu með tvo til reiða. Halldóra skellti sér svo á bak ásamt Sigurjóni þegar riðið var til baka eftir kaffið á Botnum, Holla, Gulli og Þórunn fylgdu þeim til baka.

jodissemfolald1  jodis1  sigurjonmedhrossin1